Guðbjörg Sigurðardóttir, eiginkona Ottós Guðjónssonar lýtalæknis, hefur sett glæsilegt hús sitt við Ægisíðu á sölu. Hjónin festu kaup á húsinu árið 2000 en árið 2009 eignaðist Guðbjörg húsið að öllu leyti.
Húsið er ákaflega fallegt og hefur verið vel við haldið þau 16 ár sem Ottó og Guðbjörg hafa búið í húsinu. Garðurinn fyrir utan húsið er einstaklega snyrtilegur og að innan er nostrað við hvern fermetra.
Húsið er 426 fm að stærð en það var byggt 1958. Fasteignamat hússins er tæplega 123 milljónir.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.