Við Skógarveg í Fossvogi stendur glæsileg 160 fm íbúð í splunkunýrri blokk sem verið var að byggja. Íbúðin er búin öllum nútímaþægindum með eldhúsi sem er opið inn í stofu, þvottahúsi inn af eldhúsi, baðherbergi inn af hjónaherbergi og fleiru í þeim dúr.
Í eldhúsinu eru hvítar sprautulakkaðar innréttingar og prýðir stór eyja eldhúsið. Það sem vekur þó athygli er að á íbúðina eru settar 89 milljónir sem þýðir að fermetrinn er á 556 þúsund krónur.