Smekklegheitin eru allsráðandi á heimili nokkru í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða 147 fm íbúð sem stendur í húsi sem byggt var 1959.
Eldhúsið er opið inn í stofu og borðstofu með eyju sem aldeilis kemur að góðum notum. Eyjan stúkar pínulítið af stofuna og eldhúsið en í henni er hvorki vaskur né eldavél. Hvítu flísarnar á endaveggnum koma vel út og líka grái liturinn sem prýðir vegginn fyrir ofan flísarnar.
Íbúðin er parketlögð og er húsgögnum fallega raðað saman í íbúðinni.