Eitt mest sjarmerandi hús landsins er komið á sölu. Um er að ræða heila húseign við Tjarnargötu í Reykjavik. Fyrir þá sem elska miðbæ Reykjavíkur og kunna að meta gömul hús þá er þetta alger gullmoli.
Um er að ræða tveir hæðir, kjallara og baðstofuloft. Það sem einkennir húsið, fyrir utan frábæra staðsetningu, er hversu skemmtilega það er innréttað. Í húsinu má sjá fantaflott veggfóður og eitursvala litapallettu. Allir gluggar og tréverk innanhúss er lakkað með háglansandi lakki. Þetta kemur allt vel út og svo er heimilið búið fallegum húsgögnum.