Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri Under Armour á Íslandi, hefur sett glæsilega íbúð sína á sölu. Íbúðin er 122 fm að stærð og stendur í húsi sem byggt var 2002.
Íbúðin er með ljósum innréttingum og ljósu parketi á gólfum. Heimilið er stílhreint og smekklegt og ekkert óþarfa prjál þvælist fyrir neins staðar eins og sést á myndunum.