Björk Eiðsdóttir ritstjóri MAN hefur sett glæsilega íbúð sína á sölu. Íbúðin er sérlega fjölskylduvæn og er á besta stað í bænum.
Íbúðin er 113 fm að stærð og er í húsi sem var byggt 1958. Húsið sjálft er teiknað af Sigvalda Thordarsyni sem teiknaði mörg fallegustu hús Reykjavíkur.
Íbúðin er vel skipulögð en í henni er eldhús og stofa í opnu rými. Í eldhúsinu er hvít innrétting og eyja og rúmgóð borðstofa.
Heimilið er hlýlegt og fallegt en í íbúðinni er sér herbergisgangur sem hægt er að loka af. Íbúðin er máluð í hlýjum litum og á hver hlutur sinn stað.