Við Framnesveg í Reykjavík stendur ákaflega vel heppnuð og vel skipulögð 62 fm íbúð. Hver fm er nýttur til fulls í íbúðinni og hvergi er dauður punktur. Hugsað er út í hvert smáatriði og snyrtimennskan er í forgrunni.
Vel lakkaðir gólflistar og hurðir setja svip sinn á íbúðina sem er parketlögð að hluta til og flísalögð að hluta til. Inni á milli eru flotuð gólf. Falleg húsgögn eru áberandi í íbúðinni og er þeim raðað upp eftir kúnstarinnar reglum.