Við Guðrúnargötu í Norðurmýrinni stendur glæsileg hæð sem búið er að endurnýja töluvert. Eldhúsið er stórt og bjart með flottri innréttingu. Eldhúsinnréttingin er úr viði og líka hvít sprautulökkuð. Gólfin eru úr plankaparketi og flísalögð.
Í íbúðinni er snyrtimennskan í fyrrirúmi og allt á sínum stað.