Fáránlegt að eyða í dýrar innréttingar

Halla Bára Gestsdóttir er innanhússhönnuður með masterspróf.
Halla Bára Gestsdóttir er innanhússhönnuður með masterspróf. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Halla Bára Gestsdóttir ritstýrði íslenskum hönnunarblöðum eins og Lifun og Veggfóðri áður en hún ákvað að læra innanhússhönnun í Mílanó á Ítalíu sem endaði með mastersprófi. Aðspurð hvers vegna þetta hafi þróast svona segir hún að vinna hennar og áhugasvið hafi einfaldlega þróast í þá átt. 

„Að taka næsta skref og gera meira með það sem ég hafði tileinkað mér og lært. Áhugi minn á heimilinu sem stofnun, útliti og yfirbragði þess í því að heimilisfólki líði vel hefur alltaf blundað í mér. Mér fannst ég hafa tækifæri til að vinna á víðari vettvangi og að fjölbreyttari verkefnum með því að fara í nám og því sé ég aldrei eftir,“ segir hún. 

Þegar Halla Bára er spurð að því hvað hún leitist við að fanga í sinni hönnun segir hún að heimilið þurfi að vera eðlilegt – ekki einhver draumur. 

„Að svara spurningunni hvað lætur okkur líða vel í umhverfinu heima sem og á þeim stöðum þar sem við eyðum tímanum okkar? Hvernig getur þátturinn „hönnun” tekið þátt í því? Við lendum oft í því að eltast við hluti sem eru frekar einhver draumur um sjálf okkur en raunveruleiki. Það á allt að vera svo æðislegt frekar en eðlilegt. Það sem er spennandi í hönnun sem snýr að nánu umhverfi okkar er hvernig má uppfæra það sem er eðlilegt, þróa það og breyta. Það þarf að vera pláss fyrir fólk og þarfir þess í hönnuninni,“ segir hún. 

Nú halda margir að innanhússhönnuðir vilji bara raða rándýrum hlutum saman, þú ert ekki alveg stödd þar eða hvað?

„Já, líklega er það rétt að einhverjir hugsi á þann hátt því allt of margir líta á innanhússhönnun sem hobbý frekar en mikilvæga grein í því að skapa mannlegt umhverfi, umhverfi sem tekur mið af manninum og þörfum hans. Frá upphafi verks ætti að huga að hugtökunum vellíðan, fegurð, hamingja, þægindi og andrúmsloft þegar kemur að því að setja saman og hanna umhverfi fyrir heimili. Þetta snertir fólk andlega og líkamlega og er hluti af því að heimilið sé hlýlegt og afslappað, vinalegt og umvefjandi.

Ég aðhyllist þá hugsun að vinna með það sem þú hefur! Þú skapar ekki persónulegt og hlýlegt umhverfi á annan hátt en að nota það sem skiptir fólk máli og hefur þýðingu í sögu þess og lífi. Þá er ég ekki að tala um að engu megi breyta og bæta við, þvert á móti, heldur blanda og pússla saman. Ég á mjög erfitt með heimili sem taka hamskiptum með reglulegu árabili. Þau ná mér engan veginn.“

Getur þú lýst þínum stíl?

„Í einu orði: Persónulegur. Það er hugtakið sem ég vinn með heima hjá mér og fyrir aðra. Ég og maðurinn minn, Gunnar Sverrisson ljósmyndari, erum með mjög blandaðan stíl og mixum óhikað saman. Óvæntir hlutir sem lenda saman skapa áhugaverðan pól og gefa leyfi á að nota allt sem manni þykir fallegt.

Ég er ekki mikið fyrir fastar innréttingar en þær eru nauðsynlegar upp að ákveðnu marki. Það þarf alltaf að vera hæfilega mikið af skápa- og geymsluplássi svo allt virki. Ég er talsmaður þess. En innréttingar eiga ekki að vera aðalatriðið og góður innanhússarkitekt er algjörlega á því líka, enda leikur hann leikinn mun lengra í að vinna með fólki og hugsa næsta skref í hönnuninni. Ef ekki þá er hlutur innréttinga orðinn svo dýr í öllu hönnunarferlinu að allt annað skortir því svo miklu var eytt í þær.

Hér er ég smá hvassyrt en þetta er staðreynd. Ég er á þeirri skoðun að það sé hægt að búa smátt og kósý ef gott er að koma öllu sínu haganlega fyrir og allt á sér sinn stað. En þegar innréttingar eru hreinlega aðalatriðið, skortir margt upp á til að heimilið virki sem skyldi þegar kemur að andlega og tilfinningalega þættinum.

Innanhússhönnun verður bara eitt atriði á tossalistanum sem beðið er eftir að geta krotað yfir til að líta á sem lokið, en slíkt verk klárast aldrei og á ekki að gera það. Mér finnst þessi myndlíking mjög góð: Þetta er eins og að rugla saman hráefnalista í uppskrift og halda að hann sé máltíðin. Það þarf að blanda hráefnunum saman svo úr verði góður matur.“

Hvað er fólk yfirleitt að vesenast með inni á eigin heimilum?

„Að ná fram góðu yfirbragði og andrúmslofti því fólki finnst skorta eitthvert jafnvægi til að allt virki. Það leitar en áttar sig ekki á því hvað vantar. Þetta er einfaldlega næmni fyrir umhverfinu sínu og áhugi. Svo er þetta mikið aðstoð við litaval og breytingar á einstaka herbergjum eins og eldhúsi og baðherbergi.“

Fyrir hverju fellur þú þegar þú ert að vinna með heimili?

„Alltaf því sama; persónulegri umgjörð, hvort sem það er minimal eða maximal – sögunni og að sjá heimilisfólk í umhverfinu. Heimili án sálar eru ekki aðlaðandi, sömuleiðis of praktísk heimili, hagkvæm, slétt og felld, engar misfellur. Misfellurnar skipta máli og sýna orku og ástríðu, það að heimilið verður aldrei fullkomið, og á ekki að vera það, þegar kemur að útlitinu. Heimili á aldrei að vera eins og ljósmynd í meðalgóðum húsgagnabæklingi.“

Hvernig eru verkefnin sem þú hefur verið að vinna að?

„Heimili, hótel, íbúðahótel, skrifstofur fyrir sjálfa mig og aðra. Þetta eru fjölbreytt verkefni en ég vinn þau alltaf út frá sama útgangspunktinum – þessari nálgun að finna út og skoða hvað það er sem hentar lífi fólks og hvernig því líður í umhverfinu. Ég nota mjög sjaldan hugtakið að hanna í kringum það sem ég geri, því nánast allt í kringum okkur er hannað. Orðið hönnun er of mikið notað að mínu mati í yfirborðskenndri merkingu, „þetta er svona hönnun“ heyrist oft. Hönnun er að hanna, það er ferli að skapa og búa til, ekki hugtak yfir fagurfræði.“

Nú ætlar þú fljótlega að vera lesendum Smartlands innan handar með innanhússráðgjöf og leyfa þeim að senda inn spurningar. Getur þú sagt mér hver hugmyndin er á bak við það?

„Áhugi og vilji til að allir hafi aðgang að þeim möguleika að leita sér smá aðstoðar þegar kemur að útliti og yfirbragði heimilisins óháð fjárhag. Það er oft svo lítið sem þarf til að aðstoða fólk og breyta miklu. Bara önnur sýn, reynsla, engin bylting, hvatning, staðfesting á hugmyndum annarra. Slíkt er ekki eingöngu fyrir þá sem hafa rýmri fjárráð, heldur alla sem hafa áhuga á heimilinu sínu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál