Við Vatnsstíg 15 í Reykjavík stendur glæsileg íbúð á besta stað. Pétur Stefánsson er skráður eigandi íbúðarinnar sem er 217 fm að stærð.
Húsið sjálft var byggt 2004 og eru allar íbúðirnar í húsinu stórar og rúmgóðar. Allar innréttingar eru sérlega glæsilegar og fínar eins og sést á myndunum.