Íslendingar eru upp til hópa afar áhugasamir um innanhússhönnun og vilja flestir hverjir hafa fínt í kringum sig. Það er því ekki nema von að margir foreldrar leggi mikið á sig til að gera herbergi barna sinna sem vistlegust.
Sumir munir eru vinsælli en aðrir þegar kemur að því að innrétta vistarverur smáfólksins og tískustraumar greinilegir í barnavörum eins og öðru.
Smartland tók saman lista yfir hluti sem prýða fjölmörg íslensk barnaherbergi, enda sérlega krúttlegir og smart.
Indíánatjöld eru sérlega kósý, en þau má finna í fjölmörgum barnaherbergjum.
Pinterest
Stafaborðana vinsælu má sjá í öðru hverju barnaherbergi, að því er virðist.
Pinterest
Foreldrar hafa verið iðnir við að mála grafísk mynstur, svo sem fjallstinda, á veggi barnaherbergja.
Pinterest
Sparkbíllinn frá Goki er skyldueign, en svo virðist sem annað hvert barn á landinu leiki sér með sams konar bíl.
Pinterest
Svart-hvít plaköt, hvort sem er með texta eða myndum, hafa verið áberandi í barnaherbergjum upp á síðkastið.
Pinterest
Svart-hvít litapalletta er áberandi í barnaherbergjum dagsins í dag. Bleik prinsessuherbergi eða blá strákaherbergi eru farin að verða sjaldgæf sjón. Í vinstra horni myndarinnar má sjá Miffy-kanínulampann sem einnig nýtur mikilla vinsælda.
Pinterest
Heimagerðar fataslár fyrir fínu prinsessukjólana njóta mikilla vinsælda.
Pinterest
Bílateppin sem nutu mikilla vinsælda hér áður fyrr eru sjaldgæf sjón í dag. Kringlóttar mottur eru þó ákaflega vinsælar, en þær eru gjarnan skreyttar með grafísku mynstri.
Pinterest
Geymslubox frá Lego eru til margra hluta nytsamleg, auk þess sem þau þykja sérlega fín um þessar mundir.
pinterest
Skýjamynstur er algeng sjón í barnaherbergjum. Algengt er að sjá mynstrið á veggjum, rúmfötum eða öðrum textíl.
Pinterest
Stafabollar eru sérlega vinsælir, en stafaæðið hefur náð að teygja anga sína inn í íslensk barnaherbergi. Design Letter-stafakubbarnir, sem skreyttir eru með letri Arne Jacobsen, má sjá í fjölmörgum barnaherbergjum.
pinterest