Ertu að hugsa um að stækka pallinn eða gera garðinn ógleymanlegan? Garðurinn í kringum þetta meistarastykki ætti svo sannarlega að fá verðlaun, svo flottur er hann.
Húsið er á vesturströnd Bandaríkjanna, nánar tiltekið í Seattle. Það er hannað af arkitektastofunni mw|works architecture + design og má sjá hversu mikil vinna er lögð í hvert einasta smáatriði.
Hægt er að opna húsið upp á gátt þannig að garðurinn flæði inn í stofu og myndi eina heild. Innandyra er mikið lagt í fallegar innréttingar og er samsetning á húsgögnum falleg. Þegar út í garð er komið tekur við ævintýraheimur sem lætur engan ósnortinn. Allavega ekki þá sem hafa áhuga á að rækta garðinn sinn.
Pallar mæta blómabeðum og spilar þetta allt vel saman við heilarmynd hússins.