Gullið tekur völdin inni á heimilinu

Gylltur fjögurra arma gull-kertastjaki er mættur í IKEA.
Gylltur fjögurra arma gull-kertastjaki er mættur í IKEA. Ljósmynd/IKEA

Finnst þér gull inni á heimilinu vera eingöngu fyrir eldri frúr og furðufugla? Eða er það kannski bara fyrir greifa götunnar sem eru með allt of dýran smekk? Ef svo er skaltu halda áfram að lesa. Gullið er það sem mun gefa öllum heimilum meiri glamúr í vetur og gullið mun framkalla meiri hlýleika. Gullið kemur með ferskan andblæ inn á heimilin enda passar það ansi vel við nútímastrauma í innanhússhönnun. 

Bláir og grænir tónar verða áberandi inni á heimilinu á komandi vetri. Blómamunstur eru líka að koma aftur og svo er það gullið sem mun gera allt vitlaust. Þegar ég segi gull þá meina ég auðvitað brass, sem er gulllitað. 

Og það eru allir að veðja á gullið. Sænska móðurskipið IKEA er um þessar mundir að fylla verslun sína af vörum úr gulli. Eins og gullrömmum, gullkertastjökum í ýmsum gerðum, glerkúplum með gullstand og lampafótum úr gulli. 

Í haust verður stíllinn svolítið þannig að kaótíkin má njóta sín þannig að þeir sem eru ögn kaótískir í hugsun og smekk munu eiga góða tíma fyrir höndum. Guð blessi það! 

Ertu að fylgja Smartlandi á Instagram? 

Gullið gerir allt kreisí. Hvernig finnst ykkur þetta trend?

A post shared by Smartland (@smartlandmortumariu) on Aug 18, 2017 at 6:58am PDT


 

Fjögurra arma gullstjakinn passar líka vel við bleikt.
Fjögurra arma gullstjakinn passar líka vel við bleikt. Ljósmynd/IKEA
Gullrammar hafa alltaf þótt vandaðir og fínir inni á betri …
Gullrammar hafa alltaf þótt vandaðir og fínir inni á betri heimilum. Nú er hægt að kaupa þá í IKEA. Ljósmynd/IKEA
Gullið kemur vel út inni í glerskápum.
Gullið kemur vel út inni í glerskápum. Ljósmynd/IKEA
Gyllt fer sérstaklega vel með veggfóðrum, bláum flaueli og flöskugrænum …
Gyllt fer sérstaklega vel með veggfóðrum, bláum flaueli og flöskugrænum húsgögnum. Ljósmynd/IKEA
Ljósmynd/IKEA
Ljósmynd/IKEA
Ljósmynd/IKEA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál