Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari hefur sett sína fallegu íbúð á sölu sem er við Strandveg í Garðabæ. Heimilið er fallega innréttað og smekklegt í alla staði.
Íbúðin er 134 fm að stærð og stendur í húsi sem byggt var 2004. Í eldhúsinu er eikar-innrétting með fallegum ílöngum flísum á milli skápa. Efri skáparnir í eldhúsinu eru hvítir sprautulakkaðir.
Íbúðin sjálf er opin og björt enda eru gluggar í þrjár áttir sem gerir hana skemmtilega.