Við Sporðagrunn í Reykjavík stendur glæsileg 94 fm íbúð þar sem hver einasti fermetri er nýttur til fulls. Afar smekklegt er um að litast í íbúðinni. Vatnsblá sjöa setur svip sinn á eldhúsið.
Innréttingin sjálf er hvít, sprautulökkuð, og sómir eldhúsborðið sér vel úti á miðju gólfi. Loftljósið og stólarnir skapa hlýleika og það gera líka hvítu gluggatjöldin sem þekja gluggana.
Eldhúsið og stofan eru hlið við hlið og andar vel á milli. Í íbúðinni eru margar sniðugar lausnir eins og vinnuaðstaða á ganginum og skógeymslur í anddyrinu.