Mun fara yfir jólaþrifin á Snapchat

Sólrún mun fara yfir jólaþrifin á Snapchat, hún er með …
Sólrún mun fara yfir jólaþrifin á Snapchat, hún er með notendanafnið solrundiego.

Bloggarinn og Snapchat-arinn Sólrún Lilja Diego er mikið jólabarn og elskar allt sem tengist jólatímanum. Sólrún, sem er þekkt fyrir að deila góðum ráðum sem tengjast heimilishaldi og þrifum á blogginu sínu og á Snapchat, mun á næstunni fara yfir jólaundirbúninginn með áhugasömum á þeim miðlum.

Frétt af Smartlandi: Guðdómlegt 128 síðna Jólablað

Jólin eru án efa minn uppáhaldstími, þá sérstaklega þegar snjórinn byrjar að falla og fjölskyldan verður nánari. Að vera í jólafríi og njóta tímans með fjölskyldunni er uppáhalds,“ segir Sólrún sem mun fara yfir jólaþrifin með fylgjendum sínum á Snapchat. „Ég elska að hafa hreint í kringum mig og sömuleiðis elska ég að miðla reynslu minni til annarra, það geri ég daglega í gegnum Snapchat. Þar kemur þrifáráttan sterk inn.“

Eins og áður sagði er Sólrún mikið jólabarn og hún þarf hálfpartinn að halda aftur af sér þegar
kemur að jólaundirbúningnum. „Ég reyni að halda aftur af mér með skreytingarnar,“ segir hún og hlær. „Ég reyni að halda í hefðirnar sem mamma hefur verið með síðan ég var barn en ein er að skreyta fyrir fyrsta í aðventu. Sama með baksturinn, ég elska að baka og geri mikið af því fyrir jólin. En ég byrja ekki fyrr en heimilið er orðið fullskreytt.“ Sólrún byrjar svo tiltölulega snemma að kaupa jólagjafir og undirbúa innkaupin. „Ég byrja í september eða október að skrifa niður lista yfir þá sem fá gjafir og kort frá okkur. Mér finnst gott að byrja snemma - bæði peninga og tímalega séð. Ég vil alls ekki vera í stressi rétt fyrir jól að kaupa gjafir, þess vegna byrja ég að kaupa eina og eina í byrjun október. Það er líka sniðugt að dreifa kostnaðnum yfir október, nóvember og desember svo maður fái ekki einn stóran reikning í hausinn í desember.“

Spurð út í jólahefðir segir Sólrún að hún og unnusti hennar, Frans, séu farin að skapa sér sínar eigin jólahefðir saman. „Já, við höfum verið að bæta einni og einni hefð við hver jól enda elska ég skemmtilegar jólahefðir. Við til dæmis kaupum okkur eitt fallegt jólaskraut í byrjun desember. Svo fáum við fjölskylduna í mat og spilum saman á aðventunni, skreytum piparkökuhús, sendum jólakort og fullt fleira skemmtilegt. Ég get heldur ekki beðið eftir að skapa skemmtilegar hefðir með Maísól, stelpunni okkar, mér finnst skipta öllu máli að leyfa börnunum að taka þátt í svona hefðum.“

Jólatónlistin er ómissandi í þrifunum

Þegar kemur að jólaþrifunum byrjar Sólrún á eldhúsinu, það tekur hún sérstaklega vel í gegn fyrir hátíðirnar. „Ég byrja alltaf á eldhúsinu þegar ég þríf, sama hvort það eru vikuþrifin eða jólaþrifin. Mér finnst það bara langbest. Það sem ég tek í nefið fyrir jólin í eldhúsinu er bakaraofninn, örbylgjuofninn, helluborðið, ruslaskápurinn, uppþvottavélin, viftan og ísskápurinn.“ Því næst tekur Sólrún baðherbergið í gegn. „Ég er síðan með þvottahús sem ég
vil alltaf hafa tipp topp og sömuleiðis þvottavélina og þurrkarann. En allt þetta sem ég hef talið upp fer ég reglulega yfir á Snapchat. Fólki finnst gott að láta „minna“ sig á svona hluti svo áhugasamir geta fylgst með þar.“

Í jólaþrifunum þykir Sólrúnu gott að hækka vel í tónlistinni. „Mér finnst svo jólalegt að setja jólalögin í botn og þrífa sófann og gólfmottuna,“ segir hún og hlær. „Já, alveg klárlega,“ segir Sólrún spurð hvort hún lumi á einhverju skotheldu ráði til að kalla fram ferska lykt á heimilinu. „Gamalt og gott er að sjóða borðedik í potti. Fólk hefur gert þetta í hundrað ár og þetta er til dæmis algjör snilld fyrir þá sem vilja losna við skötulyktina í ár,“ segir Sólrún sem mælir svo með að sjóða kanil eða negul með edikinu í desember og kalla þannig fram sannkallaðan jólailm.

Áhugasamir geta svo fylgst með henni á Snapchat, undir notendanafninu solrundiego, en þar mun hún deila með áhorfendum sínum hvernig hún framkvæmir jólaþrifin heima hjá sér. Svo mun hún einnig deila öllu saman með lesendum sínum á Mamie.is.

Sólrún og Frans hafa þá hefð að kaupa eitt nýtt …
Sólrún og Frans hafa þá hefð að kaupa eitt nýtt jólaskraut hver jól.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál