„Hér er einn af þessum sívinsælu og sígildu kjúklingaréttum sem eru svo þægilegir matreiðslu en jafnframt alveg einstaklega ljúffengir. Uppskriftin er byggð á hinum klassíska ítalska piccata-kjúklingi en piccata stendur fyrir matreiðsluaðferð þar sem kjöt er skorið þunnt, velt upp úr hveiti eða öðru mjöli, steikt og borið fram í einhvers konar sósu. Á ítölskum veitingastöðum (allavega þeim sem ég hef farið á) er piccata-kjúklingur oftast í hvítvíns- eða sítrónusósu, gjarnan borinn fram með kapers. Mér þykir rétturinn alveg einstaklega góður, enda bæði hrifin af kapers og sítrónubragði sem er sannarlega áberandi í réttinum. Það er kjörið að bera piccata-kjúklinginn fram með góðri kartöflumús eða bara einföldu grænu salati. Ískalt hvítvínsglas myndi sennilega ekki skemma fyrir,“ segir Helena Gunnarsdóttir matarbloggari á Eldhúsperlum.
Piccata-kjúklingur (fyrir 4):
Hitið pönnu á meðalhita og setjið á hana smjör og ólífuolíu. Kryddið kjúklinginn með salti og pipar. Dreifið úr hveitinu á disk og veltið kjúklingnum upp úr hveitinu.
Steikið kjúklinginn þar til eldaður í gegn eða í um það bil fjórar mínútur á hvorri hlið. Takið af pönnunni og geymið á diski. Hækkið hitann á pönnunni og hellið hvítvíni, sítrónusafa og kapers út á. Látið sjóða niður í 2-3 mínútur. Hellið rjómanum út í og smakkið til með salti og pipar.
Setjið kjúklinginn út í sósuna og leyfið að malla í örfáar mínútur eða þar til kjúklingurinn hefur hitnað aftur í gegn. Stráið saxaðri steinselju yfir og berið fram.