Ragnhildur Þórðardóttir eða Ragga nagli eins og hún er kölluð var gestabloggari hjá Berglindi Guðmundsdóttur á Gulur, rauður, grænn og salt og gaf uppskrift að þessari dásemdar-súkkulaðiköku.
Botn
80 g möndlumjöl
20 g kókoshnetuhveiti
12 g Fiber Sprinkle (gefur krönsj undir tönn, má líka nota mulið hrökkbrauð)
1 eggjahvíta
1 dl möndlumjólk
Fylling
450 g kotasæla
250 g kvark/hreint skyr/grísk jógúrt (1%)
2 msk Erythriol
1 msk Walden Farms Marshmallow Dip (má sleppa)
1 tsk súkkulaði sykurlaust Jello pudding mix
1,5 msk Hershey's ósætt kakó
kókoshnetudropar
Aðferð:
- Hræra allt gumsið sem fer í botninn saman þar til það verður að deigi og hnoða í kúlu.
- Setja kúluna á smjörpappírsklæddan botn af smelluformi (20-25 cm í þvermál).
- Setja annan smjörpappír yfir kúluna og fletja út með kökukefli þar til botninn hefur fyllt út í kantana.
- Henda lummunni í 160°C heitan ofn í ca 10 mínútur meðan fyllingin er preppuð.
- Hræra allt í fyllinguna saman með töfrasprota.
- Hella yfir botninn, sem ætti nú að vera orðinn fallega gullinbrúnn eins og strætisköttur á heitu tinþaki.
- Inn í ofn í 30-35 mínútur. Kakan á ekki að vera bökuð í öreindir heldur að vera aðeins „wobbly“ þegar hún kemur úr sólbaðinu. Hún heldur nefnilega aðeins áfram að bakast og taka sig eftir á.
- Svo er kvikindið toppað með horuðum þeyttum „rjóma“ úr undanrennu, horaðri súkkulaðisósu og ósætum kókosflögum.