Bergind Guðmundsdóttir matarbloggari á
Gulur, rauður, grænn og salt bakar alltaf sömu afmæliskökuna.
„Þessa köku baka ég fyrir öll afmæli og alltaf vekur hún jafn mikla lukku enda mjúk og góð með dásamlegu súkkulaðikremi. Uppskriftina rakst ég á sínum tíma á síðunni hennar Sirrýjar
lifa og njótaen þar má finna ógrinni af öðrum girnilegum uppskriftum. Ef þið eruð enn í leit af hinni fullkomnu afmælisköku mæli ég svo sannarlega með því að þið prufið þessa,“ segir Berglind á bloggsíðu sinni.

Afmæliskakan
Botnar
2 bollar hveiti
1 1/2 bolli sykur
4 msk. dökkt kakó
130 g smjör, mjúkt
1 tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
1 bolli mjólk
2 stór egg eða 3 minni

Hitið ofninn í 175°C, 165 á blástur.

Setjið allt nema egg í hrærivélarskál og hrærið í 2 mín.

Bætið eggjum út í, einu í einu og hrærið aðrar 2 mín.

Setjið deigið í 2 smurð 26 cm breið kringlótt kökuform og bakið botnana í 25 mín ( um 20 á blæstri) kakan er tilbúin þegar hún losnar frá börmunum og prjóni sem stungið er í hana kemur hreinn út. Kælið kökubotnana.

Kökukrem300 g flórsykur
200 g smjörlíki
2 msk. vatn
3-4 msk. dökkt kakó
1 eggjarauða
1 tsk. vanilludroparSkreytt með
súkkulaðiperlum frá Nóa Síríus

Sigtið flórsykur í hrærivélarskál.

Takið 100 g af smjörlíkinu og setjið í pott með vatni og kakó þar til vel samlagað.

Hellið út í flórsykurinn og hrærið vel saman.

Bætið restinni af smjörlíkinu út í litlum bitum og hrærið þar til kalt. Kremið er fyrst dökkt en verður ljósara þegar það kólnar.

Bætið eggjarauðu og vanillu út í.

Smyrjið kreminu á kökuna og skreytið hana með súkkulaðiperlum frá Nóa Síríus.