Morgunmaturinn sem fullkomnar daginn

Ef morgunmaturinn er næringarríkur og veitir fyllingu þá þurfum við ekki að borða fyrr en í hádeginu. Þessi fullkomni morgungrautur er eins og desert.

  • 1 bolli kókósvatn
  • 1 msk. hnetusmjör
  • 1 daðla
  • 3 msk. haframjöl
  • 2 msk. chia-fræ
  • handfylli af hindberjum
  • safi úr hálfri límónu
  • 1 tsk. af límónuberki

Aðferð: 

  1. Setjið kókósvatn, döðluna og hnetusmjörið í blandara. 
  2. Setjið í krukku og blandið haframjöli út í ásamt chia-fræjum og blandið saman í höndunum. 
  3. Skreytið með hindberjum og bætið límónusafanum út í ásamt límónuberkinu. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert