c

Pistlar:

29. október 2015 kl. 13:48

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Lífrænt fyrir alla

Þetta er kjörorðið hjá Kaja Organic, litlu fyrirtæki með stórar hugsjónir Karenar Jónsdóttur, sem starfrækt er á Akranesi. Kaja byrjaði smátt eins og frumkvöðlar gjarnan gera, en hefur stækkað hratt og vel. Nýlega setti hún á markað matvörulínu, sem er fyrsta lífrænt vottaða vörulínan sem pökkuð er á Íslandi.

Matvörulínan Kaja er pökkuð í umhverfisvænni umbúðir en almennt gerist eða í gluggalausa bréfpoka. Í þeim tilvikum sem vörunum er pakkað í plast innan í bréfpokunum, er ástæðan sú að varan er mjög olíurík eða viðhalda þarf í henni raka. Muldu hampfræin eru meðal annars pökkuð í plast – en þau smakkast líka dásamlega.

Plastpokarnir sem notaðir eru undir vöruna eru nýjir af nálinni og fást hjá Pmt. Þeir brotna niður í jörðinni á einu ári og til staðfestingar umhverfisvænum áhrifum þeirra hefur vottunarstofan TÚN, sem vottar vörurnar hennar Kaju, samþykkt pökkun í þessa plastpoka.

Pökkunarmeistarinn hjá Kaja Organic er þúsundþjalasmiðurinn Siggi skó, eins og hann er almennt kallaður á Skaganum, en þar fer pökkunin fram. Enn sem stendur er öll pökkun handverksvinna, en stefnt er að vélvæðinu síðar ef vel gengur. Miðaprent sér um prentun og uppsetningu límmiðana á pappírspokana, en það er hluti af markmiðum Kaja Organic að skapa störf hér á landi og bjóða vörur á sanngjörnu verði.

HÉR er hægt að finna Kaja Organic á Facebook og þeir sem vilja smakka vörurnar hennar ættu að bregða sér í Stóreldhúsið 2015 í Laugardalshöll í dag og á morgun 29. og 30. okt. Sýningin er opin frá 12-18 báða daga.

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún ruddi brautina þegar hún hóf að halda sjálfsræktarnámskeið árið 1990. Síðan þá hefur hún haldið fjölda námskeiða tengt heilsu og sjálfseflingu, aðallega kvenna, þótt karlmenn hafi líka slæðst með. Að auki hefur hún haldið fyrirlestra, bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur einnig skrifað tuttugu bækur og fjölda greina, bæði á eigin vefsíðu - gudrunbergmann.is - og í blöð og tímarit. Nokkrar bóka hennar hafa verið gefnar út erlendis, bæði í Bandaríkjunum, Noregi, Austurríki og Þýskalandi. Þú finnur hana líka á YouTube og á Instagram.

Meira