Það var fjölmennt í í útgáfuhófi Eggerts Jóhannssonar feldskera í Máli og Menningu í gær en þar fagnaði hann 35 ára starfsafmæli sínu með bók sem kallast einfaldlega Eggert feldskeri. Bókin á að gefa til kynna umfang starfs hans, áhugamála og skoðana.
Textar eru stuttir; stiklað er á stóru, ljósmyndirnar látnar tala. Textahöfundar bókarinnar eru Þórarinn Eldjárn, AA Gill, einn þekktasti dálkahöfundur Bretlands, Ólafur Stephensen, Harper og Einar Falur Ingólfsson. Ljósmyndarar sem eiga verk í bókinni eru Anders Engström, Ásgeir Einarsson, Einar Falur Ingólfsson, Emily Clarkson, George Garnier, Gunnar V. Andrésson, Hörður Sveinsson, Lisen Stibeck, Mary Ellen Mark, Ragnar Axelsson, Rebecca Harlan, Sigurður Þorgeirsson og Tom Craig.