Það var ekki fýlusvipur á neinum þegar Lína Langsokkur var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í gær. Silja Aðalsteinsdóttir skrifaði um sýninguna í Tímarit Máls og menningar og gefur dómurinn skýra mynd af sýningunni.
„Það er ekki dregið úr því í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Línu Langsokk, sem var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, hvað Lína er ósvífin stúlka. Og fer ákaflega vel á því að láta Ágústu Evu Erlendsdóttur leika hana því allir muna ennþá hvernig hún kom eins og sprengja inn í íslenskan samtíma sem Silvía Nótt – alla vega eins og ótal stórar hvellhettur,“ sagði Silja Aðalsteinsdóttir á TMM.is.