Birgir Snæbjörn Birgisson lærði myndlist í Frakklandi og á Íslandi á sínum tíma. Birgir setti nýverið upp myndlistarsýningu í listasafni ASÍ og gaf svo út bók með verkunum í framhaldinu sem hlotið hefur töluverða athygli. Í bókinni, sem heitir Ladies, Beautiful Ladies, tekur Birgir ímynd ljóskunnar fyrir. Bókinni var fagnað með rosalegu blondínuteiti á Sóley Natura Spa á laugardagskvöldið.
Bókin, sem gefin er út af Crymogeu, inniheldur 299 málverk sem máluð eru á umslög vínilplatna þar sem ljóshærðar, fallegar konur frá sjöunda og áttunda áratugnum sitja fyrir. Birgir málar á umslögin þannig að ljóskan nýtur sín vel.