Leiðtogarnir í FKA, Félagi kvenna í atvinnulífinu, láta janúarmygluna ekki fara með sig og mættu galvaskar í partí til Ernu Gísladóttur í bílaumboðinu BL í gær. Partíið fór fram í fyrirtækinu sjálfu innan um allar drossíurnar en BL flytur inn bíla frá BMW, Land Rover, Opel og Nissan svo einhverjar tegundir séu nefndar.