Dansmyndin Gone eftir Veru Sölvadóttur kvikmyndagerðarmann og Helenu Jónsdóttur danshöfund og leikstjóra var frumsýnd í Bíó Paradís í gærkvöldi í tengslum Stockfish-kvikmyndahátíðina. Á hátínni keppir myndin um stuttmyndaverðlaunin.
Ingvar E leikur eina hlutverkið í myndinni og að sögn Veru er hann rosalegur dansari.
„Myndin var tekin upp á Gljúfrasteini og hefur ekki enn verið sýnd hér á landi en hún var frumsýnd um áramótin í Helsinki,“ segir Vera.