Fúsi, íslensk mynd eftir Dag Kára Pétursson, var forsýnd í gærkvöldi. Baltasar Kormákur mætti með mömmu sína og pabba og börnin.
En hver er þessi Fúsi? Jú, hann er hlédrægur maður á fimmtugsaldri sem býr einn með móður sinni og hefur ekki haft hugrekki til að flytja að heiman. Líf hans er í föstum skorðum og helstu áhugamál eru módel af bardögum úr síðari heimsstyrjöldinni, fjarstýrðir leikfangabílar og þungarokk. Hann kemur sér reglulega fyrir í bíl sínum við höfnina og hringir í þáttastjórnanda í útvarpinu, sem er orðinn hálfgerður kunningi og biður um óskalög.
Mamma Fúsa hefur ekki gefist upp á ástinni og á nú í sambandi við myndarlegan silfurref.
Saman ákveða þau að Fúsi þurfi að fara meira út á meðal fólks og kærastinn gefur Fúsa gjafabréf á dansnámskeið í línudansi í afmælisgjöf. Hann er tregur til en lætur tilleiðast og prófar að fara í tíma. Þar kynnist hann óvænt konu, sem kemur róti á reglubundið líf hans.
Gunnar Jónsson leikur Fúsa og hefur fengið frábæra dóma fyrir frammistöðu sína en í öðrum lykilhlutverkum eru Ilmur Kristjánsdóttir, Sigurjón Kjartansson, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Arnar Jónsson. Franziska Una Dagsdóttir leikur líka stórt hlutverk í myndinni, 8 ára vinkonu Fúsa.
Það eru Baltasar Kormákur og Agnes Johansen hjá RVK Studios sem framleiða myndina í samstarfi við Nimbus Film í Danmörku og það er Sena sem dreifir henni á Íslandi.
HÉR er hægt að sjá fyrsta myndbrotið úr myndinni.