Vöðvastælt fólk í góðu formi var áberandi á árshátíð Reebok Fitness sem haldin var á dögunum á Nordica. Til þess að sjá til þess að allir skemmtu sér konunglega var Gunnar á Völlum eða Gunni samloka eins og hann er stundum kallaður fenginn til að vera veislustjóri. Markmið Gunna samloku var hláturinn væri í forgrunni og tókst það svo sannarlega.