Athafnakonan Jóhanna Waagfjörð hefur sett þetta glæsilega hús við Hörpulund 1 í Garðabæ á sölu. Sjálf er Jóhanna ekki með lögheimili í húsinu en húsið er engu að síður vandað og með fallegum og nútímalegum innréttingum.
Í eldhúsinu eru hvítar innréttingar með dekkri efri skápum, granít-borðplötum og góðri lýsingu. Þar er líka eyja og nægt pláss til athafna.
HÉR er hægt að skoða þetta hús nánar.
Veröndin fyrir utan húsið er með veglegri lýsingu.
Kojurnar í barnaherberginu skapa góða stemningu í rýminu.
Baðherbergið er með hvítri innréttingu og með viðarborðplötu.
Horft inn í sjónvarpsrýmið.
Í stofunni er ekkert óþarfa prjál.
Eldhúsið er opið inn í stofu á þennan heillandi hátt.
Efri skáparnar eru úr dökkum við.
Pallurinn fyrir utan húsið er mikill sælureitur.
Húsið er flísalagt að utan.
Hér sést hvernig stofa, eldhús og borðstofa liggja saman.