Kvikmyndin Grimmd var forsýnd í Smárabíói í gærkvöldi. Hafdís Jónsdóttir og Björn Leifsson eigendur World Class létu sig ekki vanta.
Með aðalhlutverk í myndinni fara Margrét Vilhjálmsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson.
Helgi Björnsson, Júlíana Sara Gunnarsdóttir, Hannes Óli Ágústsson, Salóme Gunnarsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pétur Sigurðsson og Hilmir Snær Guðnason fara einnig með hlutverk í myndinni.
Grimmd fjallar um tvær stúlkur sem finnast látnar í Heiðmörk og byrjar strax leit að sökudólgunum og allt fer á annan endann. Margrét Vilhjálmsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson leika rannsóknarlögreglumenn sem fá málið í sínar hendur.