Síðustu vikur hafa staðið yfir miklar framkvæmdir á mbl.is þar sem nýtt eldhús hefur verið í smíðum fyrir matarvefinn. Í gær var eldhúsið loksins klárað og sló Tobba Marinósdóttir, umsjónarmaður matarvefsins, í teiti í eldhúsinu. Eldhúsið er hugsað sem stúdíóeldhús og verða matreiðsluþættir teknir upp í eldhúsinu.
„Pælingin með partíinu var að sýna samstarfsfólkinu nýja eldhúsið en tökur byrja þar í næstu viku sem og tilraunir mínar með flippaða rétti,“ segir Tobba.
Eldhúsið er glæsilega hannað en allar innréttingar koma úr IKEA. Barþjónn frá Mekka, Áróra Árnadóttir, sá um að hrista saman kokkteila sem framkallaði góða stemningu eins og sést á myndunum.