Það var glatt á hjalla í Héðinshúsinu við Seljaveg þegar L‘Oreal fagnaði komu nýrrar húðvöru, Hydra Genius, sem gefur húðinni mikinn raka. Hægt er að nota kremið eins og rakakrem og það má bera á sig kvölds og morgna. Hydra Genius eru kraftar vatns og aloe vera-plöntunnar í forgrunni í bland við Hyaluronic Acid. Þetta gefur húðinni mikinn frískleika og líka kælingu.
Boðið var upp á Piccini-freyðivín, Kristal og nóg af ís frá Valdísi og Margrét Erla Maack mætti með óvænt atriði. Dj Dóra Júlía sá um að spila góð lög til að stemmningin væri góð.
Það sem vakti þó mesta lukku viðstaddra var án efa „photobooth“ þar sem var hægt að fanga skemmtilega stemmningu. Þar voru teknar ótal myndir sem hægt var að prenta út en til þess að gera myndirnar enn þá skemmtilegri var búið að koma fyrir baðkari sem var ansi freistandi að skella sér ofan í.