Það var glatt á hjalla í Iðnó þegar úthlutun úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur fór fram. Alls hafa 48 listamenn, svokölluð Stefaníubörn, hlotið styrk úr sjóðnum frá árinu 1970.
Leikhúslistamennirnir Björn Thors og Árni Pétur Guðjónsson hlutu Stefaníustjakann. Árni var ekki viðstaddur athöfnina en dóttir hans tók við styrknum í hans stað. Þeir hlutu hvor styrk að upphæð 850.000 krónur ásamt sérsmíðuðum kertastjaka sem nefndur er Stefaníustjakinn.
Minningarsjóður frú Stefaníu Guðmundsdóttur var stofnaður árið 1938 af hjónunum Önnu Borg og Poul Reumert og hefur því verið starfræktur í 75 ár. Markmið sjóðsins er að efla íslenska leiklist og heiðra um leið minningu frú Stefaníu Guðmundsdóttur, einn af merkustu brautryðjendum leiklistar á Íslandi.