Það var ansi ljúf og notaleg stemning í Barcelona þegar íslenski veitingastaðurinn Matur og drykkur bauð í teiti í tilefni af menningarhátíðinni La Mercé.
Íslenski sendiherrann í París, Kristján Andri Stefánsson, lét sig ekki vanta og heldur ekki Áshildur Bragadóttir, framkvæmdastjóri Höfuðborgarstofu. Íslenski konsúllinn á Spáni, Astrid Helgadóttir, mætti ásamt eiginmanni sínum Adolfo Castrillo. Í teitið mættu líka Ingvar Þórðarson og Helgi „fokking“ Björns.
Benedikt Sölvi Stefánsson eða DJ Ben Sol sá um tónlistina og var mikil og góð stemning. Smakkinu sem Matur og drykkur bauð upp á var vel tekið hjá íslenskum og spænskum gestum.