Steingeitin má ekki gleyma að hlusta í júlí

21. júlí og 22. júlí verða happadagar hjá Steingeitinni.
21. júlí og 22. júlí verða happadagar hjá Steingeitinni. mbl.is

Kæra Steingeit

Öll þín athygli verður á samböndum við maka, nána vini og fjölskyldu í byrjun mánaðar. Ef þú ert í ástarsambandi þá er þetta rétti tíminn til að grandskoða það. Mögulega mætti eitthvað betur fara? Það koma líklega upp einhver ágreiningsmál og þú munt fá mikla þörf fyrir að útskýra mál þitt en ekki gleyma að hlusta.

Ef þú hefur tök á að fara í smá ferðalag þá er þetta rétti tíminn. Stundum þarf fólk bara að komast í nýtt umhverfi til þess að gleyma öllum heimsins áhyggjum.

Í byrjun mánaðar munt þú að öllum líkindum fá góðar fréttir varðandi peningamál. Kannski færð þú launahækkun, gjöf eða arf og það mun koma sér vel. Í lok mánaðar skalt þú svo gefa þér góðan tíma í að fara yfir fjármálin og borga niður skuldir. Farðu yfir tryggingamál og fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum.

Það gengur allt vel í vinnunni og góðu hugmyndirnar streyma til þín. Júlí er rétti tíminn til að kynna fyrir öðrum þau verkefni sem þú ert að vinna að.

Þriðjudagurinn 21. júlí og miðvikudagurinn 22. júlí eru happadagarnir þínir. Þetta verður rétti tíminn til að semja, ef þú þarft að skrifa undir einhverja pappíra þá eru þetta dagarnir sem þú ættir að nýta.

Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál