Taka „selfies“ meðan á kynlífi stendur

Sjálfsmyndir tröllríða öllu á samskiptamiðlum þessa stundina. Fyrirsætan Kendall Jenner …
Sjálfsmyndir tröllríða öllu á samskiptamiðlum þessa stundina. Fyrirsætan Kendall Jenner birti þessa sjálfsmynd á Instagram. Instagram @kendalljenner

Sjálfsmyndir eru afar vinsælar um þessa mundir og fólk úr öllum stéttum og á öllum aldri virðist stunda það að taka sjálfsmyndir. En nýjasta nýtt er kynlífssjálfsmyndir. Já, þú last rétt. Fólk er víst farið að taka myndir og myndbönd af sér í miðjum klíðum.

Kynlífssjálfsmyndir virðast vera að ná miklum vinsældum í Bretlandi en samkvæmt nýrri könnun sem gerð var á vef AshleyMadison.com hafa um 71% breskra manna og 69% breskra kvenna tekið „selfie“ meðan þau eru að stunda kynlíf.

Kynlífssjálfsmyndir hafa þá líka náð ákveðnum vinsældum í Frakklandi en samkvæmt grein Glamour hafa 38% franskra karlmanna og 34% franskra kvenna smellt einni mynd af sér á „ögurstundu“.

Christoph Kraemer, talsmaður AshleyMadison.com, telur þó ólíklegt að kynlífs-„selfies“ muni  taka yfir samfélagsmiðlana í bráð. „Ég held að flestar kynlífs-selfies séu ætlaðar til einkanota.“

Selfie-stöng gæti komið sér vel fyrir þá einstaklinga sem vilja …
Selfie-stöng gæti komið sér vel fyrir þá einstaklinga sem vilja taka sjálfsmynd á meðan þeir stunda kynlíf.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál