Komin með undursamlegt húðflúr

Ragnheiður Eiríksdóttir er komin með nýtt húðflúr.
Ragnheiður Eiríksdóttir er komin með nýtt húðflúr.

Ragnheiður Eiríksdóttir kynlífshjúkka og prjónasnillingur var að fá sér nýtt húðflúr. Húðflúrið er á vinstri framhandleggnum og nær fram á úlnlið. Hún búin að íhuga það lengi áður en hún lét til skara skríða.

„Eftir heimsókn á Reykjavík Ink og langar stundir á Pinterest ákvað ég að fá mér fiðrildi. Snillingurinn Thomas Asher útfærði svo hugmyndina. Ég ætlaði fyrst að láta fiðrildið sitja á einhvers konar greinaflækju en sá svipað blóm í bók á Rvk Ink á meðan Thomas var að teikna fiðrildið... Það tók hann um 2 tíma að teikna og um 3 tíma að flúra. Ég er sjúklega ánægð með útkomuna, skyggingarnar eru guðdómlegar, línurnar óaðfinnanlegar og litirnir sjúkir,“ segir Ragnheiður sem var með þrjú lítil flúr fyrir, eitt á framhandleggnum, eitt á herðablaðinu og annað á ristinni. Þetta er ekki síðasta húðflúrið sem hún fær sér því hún er strax farin að velta fyrir sér öðru flúri. „Ég ætla að fá mér annað flúr innan nokkurra vikna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál