Orðin fjárbóndi og farin að vinna á Austurfrétt

Sigga Lund er flutt á Austurlandið og komin til starfa …
Sigga Lund er flutt á Austurlandið og komin til starfa á Austurfrétt.

Fjölmiðlakonan Sigríður Lund Hermannsdóttir, eða Sigga Lund eins flestir þekkja hana, hefur hafið störf hjá Austurfrétt. Flestir þekkja rödd hennar úr útvarpinu en síðustu ár hefur hún einnig haldið úti lífsstílsvefnum Siggalund.is. En hvers vegna er Sigga Lund farin að vinna á Austurlandi?

„Þetta kom til af því ég var að flytja með kærastanum, Aðalsteini Sigurðssyni, í Jökuldalinn hér fyrir austan. Við búum á bænum Vaðbrekku sem er sveitabær og er 90 km fyrir utan Egilsstaði. Við skötuhjúin erum því orðin kindabændur og erum við með 300 kindur. Svona er lífið óútreiknanlegt,“ segir hún og hlær.

„Svo var það einn daginn að ég sá auglýsingu frá Austurfrétt þar sem þeir voru að óska eftir starfskrafti. Ég hringdi og kannaði málið, leist vel á og var að byrja í nýju vinnunni núna í ágúst. Það verður bara gaman að takast á við þetta meðfram búskapnum, enda hverfur fjölmiðlabakterían ekki svo glatt. Mitt fyrsta forsíðuviðtal verður svo í Austurglugganum, sem Austurfrétt gefur út, á föstudaginn,“ segir hún.

Sigga Lund var lengi útvarpskona á Létt Bylgjunni og svo …
Sigga Lund var lengi útvarpskona á Létt Bylgjunni og svo var hún ansi skemmtileg í morgunþættinum með Svala og Gassa á FM957.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál