Það var mikil stemning á Kringlukránni um helgina þegar Geirmundur Valtýsson lék fyrir dansi. Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson umsjónarmenn Hraðfrétta lækkuðu meðalaldurinn á staðnum töluvert en þeir slógu í gegn á dansgólfinu ásamt félögum sínum úr Hraðfréttum.
„Við vorum einfaldlega að efla hópinn og skelltum okkur út að borða á K-bar. Aldursforsetinn, Anna Lísa, vildi fara á Geirmund Valtýs á Kringlukránni. Við létum það eftir henni,“ segir Benedikt þegar hann er spurður út í þetta. Benedikt segir að kvöldið hafi verið afar ánægjulegt.
„Við sjáum ekki eftir því, svaka stuð og þarna gafst okkur tækifæri á að hitta eldri aðdáendurna,“ segir hann og bætir við:
„Hópurinn bað um óskalag og það var Bíddu við sem varð fyrir valinu.“
Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson skemmtu sér á Kringlukránni um helgina.mbl.is/Eggert Jóhannesson