Kristín Soffía Jónsdóttir og kærasti hennar, Gestur Pálsson, eiga von á barni. Þetta er þeirra fyrsta barn.
Kristín Soffía er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík og hefur látið til sín taka í vinnu sinni fyrir borgina. Áður en hún komst inn í borgarstjórn tók Smartland Mörtu Maríu hús á henni. Stuttu síðar seldu hún íbúðina og þau Gestur festu kaup á annarri sem þau hafa verið að gera upp.