Sofia Svíaprinsessa er kasólétt þessi dægrin og hefur hún sjaldan litið betur út. Í gær kom sænska konungsfjölskyldan saman í hátíðarkvöldverði þar sem Sofia stal senunni í gulllituðum kjól. Danski vefmiðillinn BT greinir frá þessu.
Sænskir fjölmiðlamenn voru afar áhugasamir um hvaðan kjóllinn væri og biðu spenntir eftir að heyra hvaða hönnuður hefði skapað dýrðina. Svarið kom flestum á óvart en Sofia kvaðst hafa fengið kjólinn lánaðan hjá vinkonu sinni.
Sofia er ekki sú eina í sænsku konungsfjölskyldunni sem á von á barni því krónprinsessan Victoria á von á öðru barni sínu. Það verður því mikið fjör og gleði hjá sænsku hirðinni í vor þar sem Sofia er sett í apríl en Victoria í mars. Kóngur og drottning munu því hafa nóg að gera í barnbarnaauppeldi en fyrir eiga þau þrjú slík. Þau fara að ná í handboltalið ef fjölgunin heldur áfram að ganga svona vel.