Ætlaði að hringja í Skúla Mogensen

Logi Bergmann.
Logi Bergmann. mbl.is/Friðrik Tryggvason

„Ég hef lengi kallað mig sérfræðing í hrekkjum. Hef skrifað heila bók um þá og haldið marga fyrirlestra á vinnustöðum. En ég hef sjaldan verið tekinn jafnduglega og í gær,“ segir sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann á Facebook-síðu sinni. Logi er mjög hrekkjóttur og hefur stundað það í gegnum tíðina að hrekkja samferðafólk sitt. Auk þess heldur hann vinsæla fyrirlestra fyrir vinnustaði sem hafa slegið í gegn. Nema hvað. Logi er sem sagt á leið í golfferð þegar hann kemst í mikið uppnám.

„Ég er sem sagt á leið í golfferð. Og ekki hvaða golfferð sem er, heldur ferð sem var skipulögð fyrir ári. Með öllum bestu vinum mínum. Þegar við eigum kannski hálftíma eftir til Barcelona, í vél með WOW, kemur flugfreyja með skilaboð til mín á miða (sem ég get ekki sýnt ykkur af því að ég krumpaði hann í tætlur) og biðst afsökunar (mjög sannfærandi). Golfsettið mitt varð sem sagt eftir í Keflavík og ég fæ það þegar ferðin er hálfnuð! Og í því að sjálfsögðu allar kylfur, boltar og skór.

Ég varð náttúrlega alveg rosalega fúll en ákvað að vera kurteis og segja ekkert. Var samt búinn að finna númerið hjá Skúla Mogensen og tilbúinn með hárblásara, þegar ég kæmi úr vélinni,“ segir Logi. 

Logi var hálfandsetinn það sem eftir lifði flugferðar og fann fyrir töluverðum blús. 

„En á leiðinni út segir flugfreyjan að flugstjórinn vilji tala við mig. Og þegar ég geng inn í klefann til þeirra, segir hann við mig: „Það eru fleiri hrekkjalómar en þú!“

Þetta var algjörlega glæsilegur hrekkur. Náði mér algjörlega og endaði á réttan hátt. Lykilatriði í góðum hrekk, eins og ég hef marg predikað, er að hann endi vel. Ég kunni að meta hann í gær og enn betur í dag, þegar ég er búinn með tvo hringi. Með settinu mínu!

Takk. Ég var tekinn,“ segir hann. 

Logi Bergmann og Svanhildur Hólm Valsdóttir eiginkona hans með dæturnar …
Logi Bergmann og Svanhildur Hólm Valsdóttir eiginkona hans með dæturnar tvær. mbl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál