Katrín hertogaynja af Cambridge var settleg og sæt þegar hún spókaði sig um í fagurbleikum og rósóttum kjól, en hún og Vilhjálmur prins tóku þátt í dagskrá í tilefni af alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum sem haldinn er 10. október ár hvert.
Hertogaynjan klæddist sumarlegum silkikjól í tilefni dagsins, en hann er úr smiðju Kate Spade og kostar 428 sterlingspund eða tæplega 61 þúsund krónur líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.
Við kjólinn bar hún trúlofunarhringinn sinn, sem skreyttur er 12 karata safír og 14 demöntum, en hann var eitt sinn í eigu Díönu prinsessu.
Hertogaynjan er mikil tískufyrirmynd, en fötin sem hún klæðist opinberlega seljast jafnan upp eins og skot.