Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson og lögfræðingurinn og fasteignasalinn Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir eiga von á sínu öðru barni. Hann hefur verið áberandi í leikhúsinu upp á síðkastið en í síðustu viku frumsýndi hann verkið Andaðu þar sem hann og Hera Hilmarsdóttir fara með aðalhlutverk. Verkið er sýnt í Iðnó og hefur hlotið lof.
Fyrir eiga Þorvaldur Davíð og Hrafntinna eina dóttur.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með fjölgunina.