Starfsmenn þjónustuvers Wow air ákváðu að taka grínið alla leið og létu búa til grímur með andliti Skúla Mogensen forstjóra Wow air. Allt þjónustuverið skartaði grímunum í dag í tilefni af Öskudeginum. Sumir voru í borgaralegum fötum en aðrir tóku Skúla á þetta alla leið og klæddu sig eins og hann.
Forstjórinn klæðist oft rúllukragabol og tveet-jakka og nokkrir mættu þannig í tilefni dagsins. Svo voru einhverjir sem voru íþróttaútgáfan af Skúla, en hann er eins og margir vita, mikill íþróttamaður. Hjólar, syndir og hleypur eins og enginn sé morgundagurinn.
Grímurnar hafa vakið mikla kátínu hjá bæði starfsfólki og kúnnum.