Ivanka Trump, dóttir hins alræmda Donald Trump, á sand af seðlum og veglegt safn af fötum inni í skáp. Það þarf þó ekki að þýða að öll fötin sem hún klæðist séu af dýrari gerðinni, því á dögunum sást hún í hræódýrum kjól úr lággjaldaversluninni Target.
Eins og fram kemur í frétt Women‘s Health kostar kjóllinn litla 35 dollara, eða tæplega 3.500 íslenskar krónur.
Kjóllinn er að vísu úr smiðju tískudrottningarinnar Victoriu Beckham, en hún hannaði línu fyrir verslunina sem kom í verslanir á þessu ári.
Frétt mbl.is: Hannar föt undir 8.000 krónum