Viktoría Beckham birti mynd af syni Björgólfs Thors Björgólfssonar og Kristínar Ólafsdóttur á Instagram. Þar eru drengirnir tveir, sonur hennar og Daníel Darri, að drekka eplasafa úr vínglösum á fæti við sundlaugarbakka.
Daníel Darri Björgólfsson og Cruz Beckham hafa verið vinir um nokkurt skeið og árið 2016 kom Beckham-fjölskyldan til Íslands í heimsókn til Björgólfs og Kristínar. Þau lentu á einkaþotu sinni á Reykjavíkurflugvelli og fór heimsókn þeirra ekki fram hjá neinum.
Þessi mynd sem frú Beckham birtir á Instagram-síðunni sinni í dag er líklega ekki tekin í Reykjavík því hér á landi mokast haustlægðirnar yfir landið. Á myndinni er nefnilega sól og blíða, pálmatré, sundlaug, sundföt og létt stemning.