Leikkonan Nicole Kidman er nú aldeilis að fara vel með peningana sína þessa dagana og nýtir hverja flík sem hún kaupir sér. Hún mætti í sjö ára gömlum kjól á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Shanghai um helgina.
Kjóllinn er frá ítalska tískuhúsinu Dolce & Gabbana og er úr haustlínunni 2007. Einhverjir myndu nú kannski ekki láta sjá sig í fötum síðan fyrir hrun en Kidman er nú ekki að spá í því.
Leikkonan geislaði í kjólnum sem er klæddur endalausum gimsteinum og afar fallegur. Þetta sannar að klassísk og góð hönnun fer nú aldrei úr tísku enda má nota svona fínerí aftur og aftur.