Roberto Cavalli sýndi sumartískuna í Mílanó og ofurfyrirsætan Heidi Klum var í sviðsljósinu þegar hún mætti. Ofurfyrirsætan var að sjálfsögðu í alklæðnaði frá Cavalli þegar hún mætti en fyrrnefnt dress samanstóð af blússu og buxum úr sama efni.
Þessi tíska hefur verið að ryðja sér til rúms en hún gengur út á að vera í alklæðnaði úr sama efni. Tom Ford lék sér með þetta á tískuvikunni í Lundúnum á dögunum þegar hann mætti í gallabuxum við gallaskyrtu og var svo í dökkum jakka yfir. Ýmist dáðust menn að þessari fatasamsetningu eða fyrirlitu.
Sjálf er ég afar hrifin af svona samlitum fötum því í þannig klæðnaði virkum við einhvern veginn lengri og mjórri en við erum í raun og veru. Svona smáhestar eins og undirrituð þurfa bara reglulega á því að halda ...
Heidi Klum vakti athygli þegar hún mætti á tískusýninguna. Að sjálfsögðu var hún klædd í Cavalli frá toppi til táar.
mbl.is/AFP
Heidi Klum í Roberto Cavalli dressi frá toppi til táar.
mbl.is/AFP
Stuð á tískupöllunum.
mbl.is/AFP
Svart og hvítt munstur heillar.
mbl.is/AFP
Guðdómleg snið í boði Roberto Cavalli.
mbl.is/AFP
Silfurlitur verður áberandi næsta sumar.
mbl.is/AFP
Síðkjóll úr sumarlínunni 2015.
mbl.is/AFP
Munstruð föt eiga upp á pallborðið hjá Roberto Cavalli næsta sumar.
mbl.is/AFP
Svart fellur aldrei úr gildi líkt og kærleikurinn.
mbl.is/AFP
Púffermar og stutt.
mbl.is/AFP
Fyrirsætan Joan Smalls sýnir hér funheitan sumarkjól. Hann myndi henta vel á heimaslóðum hennar á Porto Rico.
mbl.is/AFP
Roberto Cavalli vill hafa kvenpeninginn í síðkjólum næsta sumar.
mbl.is/AFP
Hvíti liturinn verður áberandi.
mbl.is/AFP
Brúnt leðurbless.
mbl.is/AFP
Fallegt munstur.
mbl.is/AFP
Litríkt og stelpulegt.
mbl.is/AFP