Tískumerkið Rag & Bone gerðist svo djarft að nefna stuttbuxur í höfuðið á íslensku fyrirsætunni Sigrúnu Evu Jónsdóttur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist því Alexander Wang nefndi stígvél í höfuðið á fyrisætunni Kolfinnu Kristófersdóttur svo dæmi sé tekið.
Sigrún Eva Jónsdóttir fyrirsæta, starfar í New York, en hún var á sínum tíma uppgötvuð í H&M verslun í stórborginni aðeins 17 ára gömul. Útendari frá fyrirsætuskrifstofunni Wilhelmina Models kom auga á Sigrúnu og síðan þá hefur hún starfað sem fyrirsæta.